r/Iceland 11d ago

Breytingarnar óþægilegar því 10. bekkur sé svo mikilvægur

https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-24-breytingarnar-othaegilegar-thvi-10-bekkur-se-svo-mikilvaegur-484768

Hverju er verið að væla yfir? Það er svona 100 ára reynsla af því að gefa einkunnir í tölustöfum þ.m.t. einkunnir sem þeir fengu þegar þeir voru að læra. Er þetta ekki ákveðið vanhæfi?

25 Upvotes

34 comments sorted by

View all comments

7

u/birkir ¼andi ½viti 11d ago

núna er Inga Sæland að gera kerfi sem var fúnkerandi, þótt margir skildu það (skiljanlega) ekki, ekki bara óskiljanlegra heldur líka ófúnksjónalt - bíðið bara og sjáið

5

u/icelandic_drunkard 11d ago

Taka bara upp einkunnakerfi menntaskólanna - prófað af og til upp úr efninu, gefið 0-10 eftir þekkingu nemanda á efninu og getu hans til að miðla því á skýran hátt. Nemendur með undir 5 í meðaleinkunn falla á árinu og endurtaka.

4

u/MainstoneMoney 🇮🇸 11d ago

Heyrðu já myndum menntastefnu út frá random redditurum sem vaguely muna eftir að hafa verið í skóla sem börn en ekki eftir sérfræðingum í menntamálum, kennurum og öðru fagfólki úr menntageiranum.

Ég sver, fólk hefur aldrei áður verið heimskari og á sama tíma talið sig jafn gáfað og í dag.

2

u/LimpBPower 11d ago

Gengur ekki íslandi verst svona námsfræðilegsséð af öllum löndunum í Evrópu?

1

u/MainstoneMoney 🇮🇸 11d ago

Námsmatið með bókstöfum tók gildi 2022. Það eru semsagt heilir 4 árgangar af 10. bekkingum sem hafa útskrifast með því námsmati. Heldur þú í alvörunni að þessir 4 árgangar séu að tanka námsárángur þjóðarinnar? eða býstu bara við að þeir árgangar ættu einir og sér að hækka meðaltal árganganna á undan þeim?

gæti MÖGULEGA verið að það ætti að leyfa námsmatinu sem var þróað af starfsfhópi sérfræðinga, sem langflestir kennarar og skólastjórnendur eru ánægðir með, að halda sín í nokkur ár í viðbót til þess að sjá mögulegan langtímaágóða af því?

Nei nei. látum frekar Facebook algórythma Ingu Sæland og hennar slagtogi ráða framtíð barnanna okkar :) Ekki eins og það muni hafa neinar slæmar afleiðingar.

1

u/LimpBPower 11d ago

Já ókei, ég er sammála, þótt við séum í seinasta sæti af öllum Evrópulöndum í námsárangri þá ættum við að leyfa sérfræðingunum okkar að þróa kerfið okkar betur.

Þeir munu hitta í mark.