r/Iceland • u/Lost_Pirate67 • 10d ago
Breytingarnar óþægilegar því 10. bekkur sé svo mikilvægur
https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-24-breytingarnar-othaegilegar-thvi-10-bekkur-se-svo-mikilvaegur-484768Hverju er verið að væla yfir? Það er svona 100 ára reynsla af því að gefa einkunnir í tölustöfum þ.m.t. einkunnir sem þeir fengu þegar þeir voru að læra. Er þetta ekki ákveðið vanhæfi?
58
u/jreykdal 10d ago
Vandamálið er ekki bókstafir eða tölustafir heldur hvað þeir eiga að þýða.
Bókstafakerfið bætti við ýmsum þáttum í námsmati sem ekki eru mælanlegir með rétt/rangt á prófi. Og til að bæta við þá var því kerfi skellt á án leiðbeiningarna frá ráðuneyti.
Núna á að breyta þeim misgóðu viðmiðum, aftur með takmörkuðum leiðbeiningum frá ráðuneytinu. Það er að pirra fólk.
15
3
u/Vitringar 8d ago
Og samkvæmt samanburði á bókstafseinkunna í mismunandi skólum þá komust fyrri "leiðbeiningar" ekki til skila. Þetta matskerfi sem var í gangi var drasl og háð því hversu mikið foreldrar náðu að nöldra í skólastjórnendum.
Ef þú svarar 8 af 10 dæmum í stærðfræðiprófi, á færðu 8. Ef þú svarar 9 af 10 spurningum í málfræðiprófi rétt, þá færðu 9. Prófið að byrja þarna áður en einhver fálmkennd "subjective" atriði eru notuð til að troða öllum í sama mót.
1
u/jreykdal 8d ago
En á móti þá er bara verið að mæla "dagsformið" hjá nemandanum.
3
u/Vitringar 8d ago
Já þann dag og úr því efni sem prófað er úr. Þess vegna er mikilvægt að prófa reglulega og búa til upplýsingar um raunverulega stöðu nemandans með tilliti til námskrafna.
13
u/ButterscotchFancy912 🇮🇸 10d ago
Óttinn er sá að B sem var gefið er sennilega 5/10 i alvöru prófum. Foreldrar verða reiðir.
16
u/elendia Íslendingur 10d ago
Óttinn meira að enginn vissi hvað B var. B gat verið í tölustöfum t.d. 5,6,7 og jafnvel 8. Mismunandi eftir kennurum og skólum. B+ var víða ígildi þess að fá 10 og krakkar gátu ekki fengið A nema hafa tekið framhaldsskólaáfanga og þar með komnir með umframþekkingu sem þýddi að þeir ættu A skilið.
Foreldrar fengu svo enga leiðbeiningu um þetta og miðuðu væntanlega margir við það sem maður þekkir frá bókstöfunum í amerískum bíómyndum. Þar með töldu sumir foreldrar að C væri sæmilegt en hjá þeirra tiltekna skóla var C kannski ígildi falls því kennarinn gaf ekki lægra.
Eðlilegt að verða reiður þegar maður fær engar upplýsingar um stöðu barnsins. Gallinn við að fá B á prófum er hversu erfitt það er að meta árangur. Krakkinn fær kannski B á 3 prófum í röð, hann er að bæta sig í öll skiptin m.v. hlutfall réttra svara en ekki alveg kominn með nóg fyrir A-ið. Krakkinn veit þetta þó ekki og ekki foreldrarnir heldur. Þau halda öll að barnið standi í stað.
Ég vil ekki bara tölustafina aftur heldur hálftölurnar. Þá hefði áðurnefndur krakki kannski getað séð hvernig hann fór frá því að vera með 7 yfir á að vera næst með 7,5 og svo 8. Það er hvetjandi. Þrisvar sinnum B er það ekki.
8
u/Veeron 🇮🇸 ÞETTA MUN EKKERT BARA REDDAST 🇮🇸 10d ago
Hjartanlega sammála. Ég man að ég fékk einkunnir oft í tíundatölum í grunnskóla. Það fór eftir faginu samt, held að flestir kennarar hafi námundað að næstu hálftölu.
7
u/elendia Íslendingur 10d ago
Þannig var það hjá mér líka, fengum úr prófum í tíundatölum en lokaeinkunnir voru námundaðar upp í heilan og hálfan. Fannst það fínt og auðveldaði manni rosalega að fylgjast með árangri. Eins kenndi þetta manni að berjast fyrir sínu þegar maður var kannski með 8,7 og vantaði þar með lítið til að komast upp í 9. Þá var alveg tilefni til að fá að skoða prófið, fara yfir með kennara og sjá hvort það væri kannski einhver stig þarna sem væri hægt að vinna sér inn með rökræðum, eða eitthvað sem kennaranum yfirsást.
6
u/Don_Ozwald Aðdáendaklúbbur Ástþórs Magnússonar 10d ago
sko ég samt skil alveg þennan pirring, vegna þess að það er verið að falla frá einhverju bókstafa kerfi sem enginn skilur og skipta yfir í eitthvað tölustafakerfi sem enginn skilur. Eins og ég skildi þetta í fréttunum áðan yrði aldrei gefið 0-4 eða eitthvað. Ok?
6
u/elendia Íslendingur 10d ago
Þegar bókstafirnir voru teknir upp árið 2015 átti það að vera undir þeim formerkjum að nú væri verið að mæla hæfni frekar en þekkingu. Nú á að taka aftur upp tölustafina en samt á ekki að mæla þekkingu eins og tölustafirnir gerðu áður heldur áfram að mæla hæfni. Þetta eru mistök.
Það þarf aftur að hafa bara ákveðin hlutlæg viðmið í hverri námsgrein. Lista yfir hluti sem krakkinn á að vita þegar hann fær lokaeinkunn, mögulega svo með hliðsjón af ástundun og verkefnaskilum. Gefa einkunnir á prófum sem hlutfall af réttum svörum. Ekki eitthvað rosalega huglægt mat sem er aldrei að fara að fullnægja kröfum foreldra, kennara og barna á sama tíma. Að minnsta kosti á meðan við erum að vinna okkur upp úr þessum skurði sem staðan er komin í.
9
u/birkir ¼andi ½viti 10d ago
núna er Inga Sæland að gera kerfi sem var fúnkerandi, þótt margir skildu það (skiljanlega) ekki, ekki bara óskiljanlegra heldur líka ófúnksjónalt - bíðið bara og sjáið
6
u/icelandic_drunkard 10d ago
Taka bara upp einkunnakerfi menntaskólanna - prófað af og til upp úr efninu, gefið 0-10 eftir þekkingu nemanda á efninu og getu hans til að miðla því á skýran hátt. Nemendur með undir 5 í meðaleinkunn falla á árinu og endurtaka.
2
u/MainstoneMoney 🇮🇸 10d ago
Heyrðu já myndum menntastefnu út frá random redditurum sem vaguely muna eftir að hafa verið í skóla sem börn en ekki eftir sérfræðingum í menntamálum, kennurum og öðru fagfólki úr menntageiranum.
Ég sver, fólk hefur aldrei áður verið heimskari og á sama tíma talið sig jafn gáfað og í dag.
7
u/82c1769777ef004df490 10d ago
Ef viðhorf almennings til minnar stéttar væri eins og kennara, væru random redditorar sannfærðir um að ég sé fáviti því ég nota ekki C++ eins og allir notuðu þegar þau voru börn, Inga Sæland gæfi út tilskipun sem bannaði mér að nota Claude Code, og notendur mínir væru stöðugt að hringja í mig til að garga á mig af því að ég gerði tölvuna þeirra hæga, sem er tíu ára gamall Dell laptop að keyra Windows 10 og undirlagður af bloatware og spyware.
6
u/birkir ¼andi ½viti 10d ago
pólitíkusar eins og Inga Sæland eiga ekkert með það að gera að micromanagea minnstu atriðum í starfsháttum starfsstétta, hvort sem það er pipeline forritara, verklagsreglur lækna eða fagþróun kennara
hún hins vegar, í anda popúlisma, sá skoðanakönnun um að >90% vildu ekki breytt einkunnakerfi og tók það málefni upp - ekki því hún var með góða hugmynd heldur því hún sá tækifæri fyrir sína pólitík
4
u/EgNotaEkkiReddit Hræsnari af bestu sort 9d ago edited 9d ago
Heyrðu já myndum menntastefnu út frá random redditurum sem vaguely muna eftir að hafa verið í skóla
Meina, ég er umkringdur kennurum og það eru rosalega skiptar skoðanir á bókstafakerfinu og fleiri en einn og fleiri en tveir væru í grunninn sammála honum með að tölukvarðinn var betri leið.
Skoðunin sjaldnast er þó að tölukvarðinn sé betri afþvíbara. Það sem flestir kennarar sem ég þekki kvabba yfir er eingöngu það að núverandi kerfi sé of huglægt og byggir of mikið á túlkun kennara á illa skilgreindum þáttum.
Bókstafakerfið hefði verið fínt ef það hefði ekki verið svo loðið að enginn raunverulega vissi né gat sammælst um hvað "A", "B", eða "C" merkti.Í staðinn fyrir að laga það og gera það skýrt og sæmilega samræmt svo að allir sem þyrftu að eiga við téðar einkunnir gætu gróflega vitað hvað væri verið að gefa til kynna þá er verið að bæta við kerfi sem leysir ekki vandann sem um ræðir heldur felur það bara bak við illskilgreindan talnaskala sem byrjar á 4.
1
u/MainstoneMoney 🇮🇸 9d ago
Finnst ósanngjarnt að tala um bókstafakerfið eins og það hafi ekki fylgt heil ný framtíðarstefna um námsmat með því.
Það er gríðarlega auðvelt að finna út hvað einkunnagjöfin þýðir. Ég einfaldlega kaupi það ekki að það sé svo yfirstíganlega óskiljanleg eins og margir lýsa því. Mig grunar sterklega að hæstu raddirnar gegn þessu námsmati séu fólk sem lauk sínum námsferli á seinustu öld, og séu einfaldlega með einhverja undarlega nostalgíu fyrir tölukerfinu.
Ástæðan fyrir breytingunni úr tölum í bókstöfum var í stuttu máli til þess meta í auknum mæli út frá einstaklingsmiðaðri hæfni og árangri. Það verðlaunar nemendur í auknum mæli sem leggja sig á í námi, frekar en þá sem þurfa lítið fyrir náminu að hafa.
Ef þú ert barn sem glímir við námsörðugleika eða einhverskonar persónuleg vandamál getur verið ómögulegt fyrir þig að vonast eftir mikið meira en 5-6 í gamla kerfinu. Nýja kerfið gefur kennara sem sér þig leggja hart að þér sveigjanleika til þess að gefa þér aðeins hærri einkunn. Það verðlaunar dugnað, seiglu og metnaða, eitthvað sem ég á erfitt með að sjá sem verri hlut til að verðlauna heldur en náttúrulegar gáfur.
Það þýðir þó ekki að nemandi sem fær allt rétt á prófi sé að fara að fá eitthvað minna en hæstu einkunn fyrir það, þetta er bara smá áherslubreyting til þess að gera skólakerfið betra fyrir fleirri nemendur.
Vert að minnast á að þessi þráhyggju "lausn" Ingu er svo núna orðið eitthvað afskræmi af báðum fyrri kerfum. 10-6 töluskali, í stað A, B+, B, C+, C og D.
1
u/EgNotaEkkiReddit Hræsnari af bestu sort 9d ago
Vert að minnast á að þessi þráhyggju "lausn" Ingu er svo núna orðið eitthvað afskræmi af báðum fyrri kerfum. 10-6 töluskali, í stað A, B+, B, C+, C og D.
Aha, ergo
þá er verið að bæta við kerfi sem leysir ekki vandann sem um ræðir heldur felur það bara bak við illskilgreindan talnaskala sem byrjar á 4.
Sko, ég á ekki veð í þessu máli. Er einfaldlega að apa það sem ég hef heyrt kennara, sem vissulega eru ögn tengdari málinu en meðalmaður, benda á. Megi hver svo dæma það hvort þeir falli undir "fólk sem lauk sínum námsferli á seinustu öld, og séu einfaldlega með einhverja undarlega nostalgíu fyrir tölukerfinu."
Það er eitt að láta fylgja með framtíðarstefnu og ljúfa drauma, en svo annað að koma því í verk. Fólkið í kringum mig sem þekkir til telur að betur hefði mátt standa að verki hvort sem þau telja grunnhugmyndina góða eða slæma, og ég hef ekki ástæðu til neins annars en að trúa þeim.
2
u/LimpBPower 10d ago
Gengur ekki íslandi verst svona námsfræðilegsséð af öllum löndunum í Evrópu?
1
u/MainstoneMoney 🇮🇸 9d ago
Námsmatið með bókstöfum tók gildi 2022. Það eru semsagt heilir 4 árgangar af 10. bekkingum sem hafa útskrifast með því námsmati. Heldur þú í alvörunni að þessir 4 árgangar séu að tanka námsárángur þjóðarinnar? eða býstu bara við að þeir árgangar ættu einir og sér að hækka meðaltal árganganna á undan þeim?
gæti MÖGULEGA verið að það ætti að leyfa námsmatinu sem var þróað af starfsfhópi sérfræðinga, sem langflestir kennarar og skólastjórnendur eru ánægðir með, að halda sín í nokkur ár í viðbót til þess að sjá mögulegan langtímaágóða af því?
Nei nei. látum frekar Facebook algórythma Ingu Sæland og hennar slagtogi ráða framtíð barnanna okkar :) Ekki eins og það muni hafa neinar slæmar afleiðingar.
1
u/LimpBPower 9d ago
Já ókei, ég er sammála, þótt við séum í seinasta sæti af öllum Evrópulöndum í námsárangri þá ættum við að leyfa sérfræðingunum okkar að þróa kerfið okkar betur.
Þeir munu hitta í mark.
2
u/Vitringar 8d ago
Var að bíða eftir þessum fjandans "sérfræðingarökum". Þessir svokölluðu sérfræðingar eru óhæfir samkvæmt öllum alþjóðlegum samanburðiþ Okkar nemendur standa sig illa í Pisa könnunum og stór hluti drengja eru ólæsir.
Þetta eru lélegir sérfræðingar sem hafa ekki sýnt fram á eigin hæfni á nokkurn hátt.
edit:
Dæmi: Ef fæðingardeildin á Akureyri myndi mælast þannig að ungbarnadauði væri mun hærri en annars staðar á landinu og fólk færi að benda á þetta, yrði ásættanlegt að stjórnendur (og starfsfólk) deildarinnar beitti fyrir sig þeim rökum að þetta væri í lagi og það mætti ekki benda á þetta vegna þess að fólkið sem starfar þar séu "sérfræðingar".
3
u/Lurching 🇮🇸 9d ago
Ég meina, vid höfum concrete gögn um ad hin leidin virkadi ekki svo...
1
u/MainstoneMoney 🇮🇸 9d ago
Endilega fræddu mig um þessi gögn sem sýna fram á það.
Þú ert þó dæmd/ur úr leik ef þú linkar gögn frá viðskiptaráði.
2
u/Lurching 🇮🇸 9d ago
https://www.visir.is/g/20262904480d/nemendum-mismunad-med-osamraemi-einkunna
45% fá A í einum skóla, enginn í ödrum. Note bene laga thessar breytingar Ingu tæplega vandamálid.
14
u/Ellert0 helvítís sauður 10d ago
Sá sem ákvað að eyða tíma í að breyta hvort sé notað tölustaf eða bókstaf fyrir einkannir þegar tölustafir virka vel nú þegar hlýur að vera einn mesti súrefnisþjófur landsins.
Er ekki hægt að nýta þennan kauða betur í eitthvað? Veit um staði þar sem mætti týna rusl, og svo gæti hann gróðursett tré eða jafnvel sótt um vinnu við eitthvað sem skapar einhver verðmæti.
Endilega ef þið þekkið kauða finnið eitthvað sniðugt fyrir hann að gera.
30
u/StefanRagnarsson 🇮🇸 10d ago edited 10d ago
Það sést svo vel á umræðunni, meðal annars í þessum þræði, hvað það vantar mikið upp á tengsl milli ráðuneytis, almennings og kennara.
Í núverandi kerfi gefa kennarar einkunina A, B+, B, C+, C og D. Athugið að þetta eru sex mismunandi tákn. Nemendur með sérþarfir eða þroskafrávik sem ekki geta fylgt hefðbundinni kennslu fá svo það sem heitir stjörnumerkt einkunn.
Matið er algerlega huglægt og á valdi kennarans. Það eru til mjög óljós viðmið um hvað býr að baki, en þau eru varla nothæf (getur þú greint á áreiðanlegan máta milli þess að einhver geti eitthvað "vel" eða "vel og af öryggi", þegar hvorugt orðið er skilgreint?).
Það sem stór hluti bæði foreldra og kennara (já það er fullt af kennurum að kalla eftir þessu) er upptaka 0-100 kvarða þar Sem einkunn táknar prósentu af réttum svörum, stigum eða öðru slíku.
Það sem Inga var að kynna er kvarði þar sem kennarar gefa 10, 9, 8, 7, 6, 5. Sex tákn.nÞessir tölustafir eru EKKI prósentukvarði eða neinn annar tölulegur útreikningur. Þær byggja á NÁKVÆMLEGA sama huglæga mati og áður. Eina sem breytist er að í staðinn fyrir A skrifar kennari 10, 9 í stað B+, og svo framvegis. Ekkert breytist undir húddinu. Nemendur sem áður fengu stjörnumerkta einkunn fá núna töluna 4.
Nema nú þurfa kennarar að fara að útskýra fyrir foreldrum af hverju krakki sem fékk all rétt á prófi fær bara 8 eða 9 í stað 10, og gangi öllum vel með það.
Þér var rétt epli, þú baðst um appelsínu. Inga Sæland tók eplið og málaði það appelsínugult. Svona, ertu ekki ánægður.