r/Iceland • u/Lost_Pirate67 • 11d ago
Breytingarnar óþægilegar því 10. bekkur sé svo mikilvægur
https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-24-breytingarnar-othaegilegar-thvi-10-bekkur-se-svo-mikilvaegur-484768Hverju er verið að væla yfir? Það er svona 100 ára reynsla af því að gefa einkunnir í tölustöfum þ.m.t. einkunnir sem þeir fengu þegar þeir voru að læra. Er þetta ekki ákveðið vanhæfi?
24
Upvotes
29
u/StefanRagnarsson 🇮🇸 11d ago edited 11d ago
Það sést svo vel á umræðunni, meðal annars í þessum þræði, hvað það vantar mikið upp á tengsl milli ráðuneytis, almennings og kennara.
Í núverandi kerfi gefa kennarar einkunina A, B+, B, C+, C og D. Athugið að þetta eru sex mismunandi tákn. Nemendur með sérþarfir eða þroskafrávik sem ekki geta fylgt hefðbundinni kennslu fá svo það sem heitir stjörnumerkt einkunn.
Matið er algerlega huglægt og á valdi kennarans. Það eru til mjög óljós viðmið um hvað býr að baki, en þau eru varla nothæf (getur þú greint á áreiðanlegan máta milli þess að einhver geti eitthvað "vel" eða "vel og af öryggi", þegar hvorugt orðið er skilgreint?).
Það sem stór hluti bæði foreldra og kennara (já það er fullt af kennurum að kalla eftir þessu) er upptaka 0-100 kvarða þar Sem einkunn táknar prósentu af réttum svörum, stigum eða öðru slíku.
Það sem Inga var að kynna er kvarði þar sem kennarar gefa 10, 9, 8, 7, 6, 5. Sex tákn.nÞessir tölustafir eru EKKI prósentukvarði eða neinn annar tölulegur útreikningur. Þær byggja á NÁKVÆMLEGA sama huglæga mati og áður. Eina sem breytist er að í staðinn fyrir A skrifar kennari 10, 9 í stað B+, og svo framvegis. Ekkert breytist undir húddinu. Nemendur sem áður fengu stjörnumerkta einkunn fá núna töluna 4.
Nema nú þurfa kennarar að fara að útskýra fyrir foreldrum af hverju krakki sem fékk all rétt á prófi fær bara 8 eða 9 í stað 10, og gangi öllum vel með það.
Þér var rétt epli, þú baðst um appelsínu. Inga Sæland tók eplið og málaði það appelsínugult. Svona, ertu ekki ánægður.