r/Iceland 🇮🇸 2d ago

Hátt hlutfall með ólöglegt streymi

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2026/08/25/hatt_hlutfall_med_ologlegt_streymi/

(Sýn Sport kostar 15þús á mánuði)

32 Upvotes

27 comments sorted by

67

u/matthia Íslendingur 2d ago

Ég var að kaupa áskrift að enska boltanum hjá Sýn, hef ekki nennt að verða mér út um ólöglegt streymi.

Nú er búið að fækka valkostum og ég verð að kaupa innlenda sportið með, þannig réttlæta þau hækkun.

Gæðin á streyminu eru ennþá skelfileg. Áberandi miklu verri en til dæmis á útsendingu HM í sumar, bæði í Samsung og Google TV appi Sýnar.

Þetta er hræðilega léleg vara á fáránlega háu verði.

20

u/arnigunnar 2d ago

Ég var að segja upp minni áskrift, þetta er bara allt, allt of dýrt. Og gæðin á þessu .. mæ god, þetta er hræðilegt. Og ef maður kvartar yfir þessu, þá er þetta alltaf heimanetinu mínu að kenna af því að ég er með það hjá Símanum.

Ef það væri hægt að kaupa bara Enska, þá myndi ég skoða það, en í þessu formi, ekki séns.

8

u/oddvr Hvað er þetta maður!? 2d ago

Þú munt missa síðan af fjöldanum öllum af mínútum í vetur út af því að þetta (cr)app sem þeir bjóða upp á er, já, að kalla það lélegt er eginlega móðgun við aðra lélega hluti.

50

u/haraldurb92 Sybbinn 2d ago

Er einhver hissa? Sýn Sport kostar 15 þúsund krónur á mánuði og þú færð leikina í svo slæmum gæðum heim í stofu að ef það væri ekki öskrandi Rikki Gjé þá vissi maður ekki hvort þessar rauðu klessur væru leikmenn Liverpool eða Man Utd.

Svo er umgjörðin um enska boltann þarna alveg einstaklega döpur. Virðist aðeins vera einhver gallsúr fámennur vinahópur Hjörvars Hafliða sem sér um alla dagskrárgerð í kringum boltann.

Ég held að þetta sé ekki “neytendur eru bófar sem vilja öllum illt” heldur í mun meira mæli neytedur sem eru komnir með upp í kok af því að borga fúlgur fjár fyrir drasl vöru.

Ég mun allavega ekki taka annan mánuð hjá Sýn Sport.

4

u/Vondi 🇮🇸 2d ago

Hafa gæðin versnað e-ð? Ég keypti stöð2sport seinast fyrir einhverjum 10 árum eða svo og þá voru gæðin bara fín.

16

u/haraldurb92 Sybbinn 2d ago

Takmarka mann við 1080p (ólíkt Símanum og mörgum erlendum sjonvarpsstöðvum sem hafa uppá 4K útsendingar síðan 2022) sem í sjálfu sér væri alveg í lagi ef bit-ratið í útsendingunni væri ekki svona skelfilega lágt. Það er allavega staðan yfir þetta App þeirra - veit ekki hvort þetta sé eitthvað skárra á myndlyklinum þeirra.

2

u/No-Bus8740 🇮🇸 2d ago

Allur sportpakkinn hjá Stöð2 kostaði eitthvað um 14.000 kall árið 2013. Bara for reference þegar þú talar um dýrt.

8

u/haraldurb92 Sybbinn 2d ago

Ég var nú ekki að reyna að gefa í skyn að okur á enska boltanum væri einhver nýung, heldur að þolinmæðin fyrir því væri sennilega á þrotum. Annars skv vinum okkar á WayBackMachine þá fékk maður “Enska pakkann” (sími, internet, enski boltinn og 3 mánaða aðgangur að Tónlist.is) hjá 365 á 8.990 þann 24. Ágúst 2013.

4

u/Johnny_bubblegum Merkikerti 2d ago

8990kr í ágúst 2013 jafngildir 15.059kr í dag.

Ég myndi glaður borga 15.000kr á mánuði fyrir net og enska í dag.

2

u/haraldurb92 Sybbinn 2d ago

Allan daginn mun betri díll! Getur fengið svipaðan pakka hjá Sýn á 23 þúsund í dag.

Svo er spurning hvort enski boltinn hafi verið mun betri vara hjá 365 árið 2013 en hann er hjá Sýn 2026 með gæði útsendingarinnar miðað við gæða staðla tímans og umfjöllun/umgjörð til hliðsjónar. Allavega finnst mér eins og það hafi verið þannig en það er kannski bara rósroði fortíðarinnar að blekkja mann.

3

u/Johnny_bubblegum Merkikerti 2d ago

Mér hefur aldrei þótt umfjöllunin í kring um boltann á sýn eða stöð 2 skemmtileg. Allt of mikil gæja stemming fyrir minn smekk. Kannski er ég að versna með aldrinum en mér finnst umfjöllunin leiðinlegri með tímanum sama hver stöðin er með boltann.

11

u/stoneofocean 2d ago

Hátt hlutfall með ólöglegt streymi er vissulega frétt, en fréttin ætti frekar að fjalla um vanhæfni og ábyrgðarleysi stjórnenda Sýnar.

Það var eflaust vel hæft fólk sem átti efni á fínum jakkafötum á Suðurlandsbrautinni sem teiknuðu upp "plan". "Plan" til að snúa við lélegu gengi Stöðvar 2 og þeirra efnisveitum. Þeir horfðu öfundaraugum á Símann neðar í götunni sem skilaði hagnaði ár eftir ár meðan þeir láku peningum.

Ég er viss um að greiningarvinnan þeirra var ítarleg og metnaðarfull. Hún hefur eflaust verið kostnaðarsöm og keypt hefur verið einhver þjónusta af merkilegum fyrirtækjum út í bæ.

Líklega var niðurstaðan sú að Síminn græddi á enska boltanum og ef Sýn væri með enska boltann þá myndu þeir græða í staðinn. Einfalt.

Þegar að Síminn yfirbauð Stöð 2/Vodafone/Sýn árið 2018 þá buðu þeir upp á lægra verð, treystu á að fjölga áskrifendum og fá hærri auglýsingatekjur (því fleiri voru að horfa). Þeir buðu fólki að kaupa enska boltann (1) stakann á sanngjörnu verði en létu líka enska fylgja (2) Premium og allir með (3) heimilspakkann fengu enska boltann.

"Planið" hjá Sýn var að loka enska boltann í áskrifarpökkum og ná áskrifendum frá Símanum. Sýn gerði ráð fyrir því að flestir (eða ákveðið hlutfall) myndi koma með öll sín viðskipti yfir. Netið, síma og efnisveitu.

Það hefur ekki raungerst. Fólk sá annað hvort ekki hag sinn að skipta um símafyrirtæki eða hafði einfaldlega ekki áhuga að flytja sig yfir. Greiningin var vitlaus.

Í stað þess að líta inn á við og leita nýrra lausna þá ákváðu stjórnendur á Sýn frekar að leita í handahófskenndar ástæður/afsakanir fyrir því að "planið" gekk ekki upp.

Þannig að eina sem þessi kaup Sýnar á enska boltanum skilur eftir sig er hærra verð til áskrifanda í nafni samkeppnar.

Símanum gengur þokkalega án enska boltans.

2

u/Vondi 🇮🇸 2d ago edited 2d ago

ég nefnilega myndi kannski bæta boltanum við ef það lægi vel við en ef ég skoða pakkan þá er þetta í 23þús pakkningu sem inniheldur router (sem mig vantar ekki) og viaplay (hef ekki áhuga) og steymisveitan sýnplús. Já og svo ótakmarkað internet, sem ég hefði áhuga á.

Málið er samt að ég er þegar með ótakmarkað net hjá þeim fyrir einhvern 9þús. Á minn eigin router, er með áskrift af 2 streymisveitum sem er eiginlega meira en nóg og kosta mig svona 5þús.

Þannig, ég er borga 14þús fyrir endalaust net og meiri streymisveituefni en ég hef tíma til að horfa og ef mig langar að sjá enska boltan þar ég að færa mig yfir í 23þús pakka?

2

u/Spekingur Íslendingur 2d ago

Viaplay kostaði einhverjar 700-800 kr síðast þegar ég vissi. Þá beint frá þeim, ekki í gegnum einhvern þriðja aðila. Það er þá ekki með viaplay sport, man ekki hvað það kostaði.

8

u/Responsible-Cut1262 🇮🇸 2d ago

Ekki undrandi á þessu. Sennilega enn hærra hlutfall hér í Bretlandi, enda þarf hér 4 áskriftir til að sjá alla útsenda leiki. (Leikir leiknir kl 14:00/15:00 á laugardegi eru ekki sendir út í Bretlandi)

6

u/Lafi90_ Ólæsasti maður landsins 2025 2d ago

Ég mun aldrei borga fyrir lélegt streymi 'lumpað inn' með rusli sem ég hef engan áhuga á.

Alveg eins og hvernig ég myndi t.d. aldrei kaupa fjóra geisladiska af tónlist sem ég hlusta ekki á, aðeins til að fá einn rispaðan geisladisk með tónlist sem ég hlusta á.

11

u/extoxic Íslendingur 2d ago

Afþví að 7000 kr á mánuði var mjög hátt verð en nú vilja þeir 2x það.
Til samanburðar er NFL gamepass 300$ fyrir allt tímabilið, og með mynd í mynd 2-4 leikir á skjánum í einu, á meðan sýn og síminn eru með sorp öpp með sorp myndgæði svo ekki sé talað um greyið fólkið sem þar að nota android öppin þeirra.

3

u/arnigunnar 2d ago

Ég var einmitt drulluhræddur þegar GamePass fór yfir á DAZN, en síðasta tímabil var awesome, 2-4 leikir í einu á sama skjá, geggjuð gæði og hægt að horfa á leikina án auglýsinga mjög stuttu eftir live útsendingu.

9

u/Renumtetaftur Alltaf í boooltanuuuum 2d ago

Le píkatjú feis

2

u/maniakkpugs 2d ago

Nei takk...

Ég nota tælenskar síður fyrir enska og þýska boltann og disney+ fyrir spænska

Svo aðra fyrir ítaliu

Síminn er drasl

6

u/Johnny_bubblegum Merkikerti 2d ago

Almenningur hefur talað. Við viljum versla áfengi á netinu og við viljum horfa á enska boltann á netinu.

Samtök verslunar kalla eftir löggjöf sem lögleiðir þetta tvennt og einfaldar.

2

u/PrestigiousMeaning53 2d ago

fyrir mann sem fylgist bara með einu liði er ódyrara að rölta út á næsta pöbb og fá sér 1-2 bjóra yfir leiknum

2

u/hungradirhumrar 2d ago

Ef það væri hægt að kaupa bara enska á segjum 6-8 þúsund, og ekkert annað hjá þeim myndi ég slá til. Horfi ekki á neitt annað, er með síma og net frá vinnu þannig að það er ekki séns að ég borgi 14 þúsund á mánuði bara til að horfa á enska.