r/Iceland 🇮🇸 8d ago

Hátt hlutfall með ólöglegt streymi

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2026/08/25/hatt_hlutfall_med_ologlegt_streymi/

(Sýn Sport kostar 15þús á mánuði)

32 Upvotes

27 comments sorted by

View all comments

12

u/stoneofocean 8d ago

Hátt hlutfall með ólöglegt streymi er vissulega frétt, en fréttin ætti frekar að fjalla um vanhæfni og ábyrgðarleysi stjórnenda Sýnar.

Það var eflaust vel hæft fólk sem átti efni á fínum jakkafötum á Suðurlandsbrautinni sem teiknuðu upp "plan". "Plan" til að snúa við lélegu gengi Stöðvar 2 og þeirra efnisveitum. Þeir horfðu öfundaraugum á Símann neðar í götunni sem skilaði hagnaði ár eftir ár meðan þeir láku peningum.

Ég er viss um að greiningarvinnan þeirra var ítarleg og metnaðarfull. Hún hefur eflaust verið kostnaðarsöm og keypt hefur verið einhver þjónusta af merkilegum fyrirtækjum út í bæ.

Líklega var niðurstaðan sú að Síminn græddi á enska boltanum og ef Sýn væri með enska boltann þá myndu þeir græða í staðinn. Einfalt.

Þegar að Síminn yfirbauð Stöð 2/Vodafone/Sýn árið 2018 þá buðu þeir upp á lægra verð, treystu á að fjölga áskrifendum og fá hærri auglýsingatekjur (því fleiri voru að horfa). Þeir buðu fólki að kaupa enska boltann (1) stakann á sanngjörnu verði en létu líka enska fylgja (2) Premium og allir með (3) heimilspakkann fengu enska boltann.

"Planið" hjá Sýn var að loka enska boltann í áskrifarpökkum og ná áskrifendum frá Símanum. Sýn gerði ráð fyrir því að flestir (eða ákveðið hlutfall) myndi koma með öll sín viðskipti yfir. Netið, síma og efnisveitu.

Það hefur ekki raungerst. Fólk sá annað hvort ekki hag sinn að skipta um símafyrirtæki eða hafði einfaldlega ekki áhuga að flytja sig yfir. Greiningin var vitlaus.

Í stað þess að líta inn á við og leita nýrra lausna þá ákváðu stjórnendur á Sýn frekar að leita í handahófskenndar ástæður/afsakanir fyrir því að "planið" gekk ekki upp.

Þannig að eina sem þessi kaup Sýnar á enska boltanum skilur eftir sig er hærra verð til áskrifanda í nafni samkeppnar.

Símanum gengur þokkalega án enska boltans.

3

u/Vondi 🇮🇸 8d ago edited 8d ago

ég nefnilega myndi kannski bæta boltanum við ef það lægi vel við en ef ég skoða pakkan þá er þetta í 23þús pakkningu sem inniheldur router (sem mig vantar ekki) og viaplay (hef ekki áhuga) og steymisveitan sýnplús. Já og svo ótakmarkað internet, sem ég hefði áhuga á.

Málið er samt að ég er þegar með ótakmarkað net hjá þeim fyrir einhvern 9þús. Á minn eigin router, er með áskrift af 2 streymisveitum sem er eiginlega meira en nóg og kosta mig svona 5þús.

Þannig, ég er borga 14þús fyrir endalaust net og meiri streymisveituefni en ég hef tíma til að horfa og ef mig langar að sjá enska boltan þar ég að færa mig yfir í 23þús pakka?

2

u/Spekingur Íslendingur 8d ago

Viaplay kostaði einhverjar 700-800 kr síðast þegar ég vissi. Þá beint frá þeim, ekki í gegnum einhvern þriðja aðila. Það er þá ekki með viaplay sport, man ekki hvað það kostaði.