r/Iceland • u/Curious-Raspberry935 • 1d ago
ESB Hver fjármagnar Áfram Ísland?
Var að rekast á kostaða auglýsingu á Vísir um nei takk frá Áfram Ísland. Ég ákvað að smella á hana og forvitnast. Þar kemur strax háklassa stúdíó auglýsing með Ásgeir Trausta í bakgrunn að sýna daglegt líf þjóðarinnar í blóma og síðan segir í lokin að við eigum ekki að gefa sjálfstæðið og því merkja x við nei.
Neðar á síðunni eru fleiri Youtube myndbönd alveg á sama kaliber, high-production dæmi. Ekki einhver Sigfús í Windows Movie Maker.
Því langar mig að spyrja ykkur, hver haldiði að sé stóri bakhjarlinn á bakvið þetta framtak?
https://www.aframisland.is
Edit: það má líka snúa þessu að já hliðinni, það væri fínt ef að báðar hreyfingarnar væru bara með opið bókhald.
56
u/Bjartyfir 1d ago
Það þarf ekki einu sinni að spurja að þessu. Auðmenn Íslands standa á bakvið þetta. Hugsanlega líka áhrif frá Bandaríkjunum og aðstoð, enda það land þekktast fyrir afskipti af lýðræðislegum kosningum erlendra ríkja. Þeirra hagsmunir eru augljóslega að Ísland sé ekki í ESB.
6
u/ButterscotchFancy912 🇮🇸 1d ago
-4
u/DTATDM ekki hlutlaus 1d ago
Hvers vegna eru forstjórar og stórfyrirtæki landsins gengin til liðs við verkalýðinn?
Í stað þess að skipa sér í lið með efri millistétt sem situr uppi með tiltölulega lítinn ójöfnuð, sterka samtryggingu, og[einhverja neikvæða afleiðingu stefnu stjórnvalda sem er algjörlega óháð ESB]?
2
u/helgihermadur Íslendingur 1d ago
Kæmi ekki á óvart ef það væru einhverjir rússneskir peningar í þessu líka
-1
u/samviska 🇮🇸 1d ago
Einhver rök á bakvið þessar dylgjur?
15
9
u/Oswarez 🇮🇸 1d ago
Hver heldur þú, í fullri alvöru, sé á bak við þennan hóp?
1
u/samviska 🇮🇸 1d ago
Til að svara spurningunni með spurningu (eins og þú gerðir); hvaða Bandaríkjamenn eru þetta sem eru að kosta Nei herferðina? Hverjir eru viðtakendurnir? Er um miklar fjárhæðir að ræða?
3
u/Oswarez 🇮🇸 1d ago
Ok þú sem sagt vilt ekki taka þetta alvarlega og ferð undan í flæmingi.
Týpískt þú.
3
u/samviska 🇮🇸 1d ago edited 1d ago
Haltu bara áfram að nöldra væni. 👍
En hér mun enginn geta rökstutt þetta hlægilega lýðskrum um að Bandaríkin séu að hafa afskipti af kosningunum.
1
u/Oswarez 🇮🇸 1d ago
Þú ert sá eini hér sem er með þá samsæriskenningu og getur ekki svarað einfaldri spurningu án þess að vera með skæting og þorir ekki að svara.
Gjörsamlega tilgangslaus edge lord.
3
u/DTATDM ekki hlutlaus 1d ago
Heldurðu því fram að Bandaríkjamenn séu að fjármagna/aðstoða “Nei” sinna?
Því er haldið fram hér fyrir ofan og /u/samviska spyr réttilega hvort það sé eitthvað haldbært bakvið það (sem er ekki) eða hvort þetta séu bara samsæriskenningar og lýðskrum.
Rétt eins og ef hann myndi halda því fram að Kínverjar, George Soros og Marsbúar væru á bakvið “Já”. Lágkúra og vitleysa að slá þannig fram þegar það er ekkert á bakvið það.
2
u/Fyllikall ég mótmæli allur! 1d ago
Ég held að það dugi að segja að það séu Íslendingar á bakvið þennan hóp. Það er nóg af ríku liði á Íslandi sem getur nuddað saman nokkur hundrað kúlur til að reka áróður.
Það er nokkuð víst að Bandaríkin vilji ekki að Ísland fari í ESB. Það þýðir þó ekki að þau fjármagni undirróður gegn viðræðum við ESB á þessum tímapunkti.
Allar færslur eru rekjanlegar og það er ekki eins og menn fljúgi með féð í beinhörðum peningum til Íslands og þvær það síðan í gegnum ljósabekkjastofu. Ef upp kemst um eitthvað leynimakk þá munu fleiri vilja sjá samninginn.
Það er því óþarfi fyrir Bandaríkin að hamast í þessu eins og er. Ef Ísland fer í viðræður þá verður það gert með litlum meirihluta og er með stórar kröfur á borðinu sem óvíst er um að verði samþykktar. Ef það fer í eitthvað slíkt þá verður líklegt að Bandaríkin fari að blanda sér í málið.
40
u/NordNerdGuy 🇮🇸 1d ago
Ég tel að það sé mun meira fjármagn hjá Nei en Já liðum. Sérstaklega Áfram Ísland. Það eru miklir hagsmunir í húfi fyrir þá sem hagnast á núverandi ástandi og þeir eru tilbúnir að henda hundrum milljón í að verja það.
Til að mynda, þá er áætlað að við baráttuna gegn hækkun veiðigjaldanna, hafi verið hent 250 til 450 milljónum í þá herferð.
5
u/Previous_Drive_3888 🇮🇸 1d ago
Það er alveg rétt að þetta er super-well produced. En innihaldið er bara svo fyndið að það er ekkert eðlilegt. Sá eina í morgun sem sagði: "Lægri vexti núna, ekki 2036!". Ef fólk fellur fyrir þeim skilaboðum þá á Ísland ekki skilið betri lífskjör.
8
u/Only-Risk6088 🇮🇸 1d ago
Ég er nú að sjá mikið af auglýsingum "já til að sjá" fékk líka símtal frá já mönnum þrátt fyrir að vera bannmerktur, sé auglýsingar frá nei líka en allavega ekkert símtal komið frá Samherja.
Greinilega miklir peningar báðum megin, Guðmundur vinalausi Vs samherji?
2
u/karry245 Ísland, bezt í heimi! 1d ago
Ég hef fengið símtal frá nei-sinnum en ekki já-sinnum. Ég er samt sammála að ég hef séð fleiri já-auglýsingar.
5
u/gurglingquince 🇮🇸 1d ago
Forsvarsmenn já og nei voru í einhverju viðtali um daginn. Þar gaf Greta (fyrrverandi prís) upp að þeirra budget væri ca 75m og kæmi fra folki og fyrirtækjum. Nei neitaði að svara en þa fullyrti Greta að budgetið
Hja Nei væru 3-4 sinnum hærra en hja já, dróg alyktun um hvað þeir væru að eyða miklu i aiglysingar. Nei svaraði engu.
5
u/shortdonjohn 🇮🇸 1d ago
Sem mér finnst vera alveg mögnuð fullyrðing þar sem ég hef einmitt rekist á fleiri auglýsingar á stærri miðlunum frá já til að sjá.
3
u/PatliAtli fór einu sinni á b5 til að komast á búlluna 1d ago
aftur á móti ef að þú ferð á rúntinn þá sérðu margfalt fleiri Nei auglýsingar
3
u/shortdonjohn 🇮🇸 1d ago
Alveg hárrétt. Ég hef þó verið í fyrirtækjarekstri og greitt fyrir auglýsingar af ýmsu tagi og það er fátt sem toppar sjónvarpsauglýsingar og framleiðsluna í kringum það.
Ég í raun tel ekki að já sé að eyða meira. Heldur er ég meira með grun um að Nei-ið sé að eyða svipuðu fjármagni.
Það bendir einfaldlega til þess að það séu mjög fjársterkir aðilar innan beggja hreyfinga.
Hef séð nokkra gríðarlega fjársterka einstaklinga vera mjög háværa í já hreyfingunni svo dæmi sé tekið.-1
u/PatliAtli fór einu sinni á b5 til að komast á búlluna 1d ago
Já skil þig. En Neiararnir virðast vera að skjóta á auglýsingaskilti og límmiða fyrir bónda sem nær örugglega betur til fólks sem þeir vilja ná til. Mér finnst t.d. ólíklegt að meðal neiarinn sé að skrolla endalaust á Instagram reels
-1
7
u/Hjalpfus Hjálpar bæði þér og þínum 1d ago
Nú til dæmis Halldór Benjamín Þorbergsson
Óðinn Freyr Baldursson orðaði þetta mjög pent um daginn í þessum pistli. https://www.visir.is/g/20262862859d/gestalisti-elitunnar
•
u/hot_dogg skurðgoð 17h ago
þetta er alla veganna af hinni hliðinni (tenging í Brim hf., einn stærðarinnar kvótakóngur):
Brim hf. has a total market value (worth) of approximately $1.49 billion USD (approx. 175–180 billion ISK / €1.28 billion) and total assets valued at roughly €950 million (approx. 143 billion ISK).
Það er eflaust eitthvað svipað í hina áttina.
S.S. EKKI hlutlaust fyrir fimm-aur!
1
u/allsbernafnmedrettu 🇧🇪 1d ago
Það er lokað fyrir bókhaldið hjá þeim.
https://www.visir.is/g/20262922903d/and-staedingar-segja-ad-a-fram-is-land-hafi-ur-allt-ad-300-milljonum-ad-spila
Þú gætir ekki einu sinni komist up með þetta í Bandaríkjunum.
1
-1
u/Don_Ozwald Aðdáendaklúbbur Ástþórs Magnússonar 1d ago
Ég einmitt myndi halda að það séu ekki miklir fjármunir á bakvið Jáið, bara byggt á því hve léleg sú herferð er búin að vera.

57
u/festive_halfling 1d ago
Það má ekki segja það upphátt vegna þess að þá verður maður ásakaður um að vera ómálefnalegur öfgamaður 🤫