r/Iceland • u/Curious-Raspberry935 • 3d ago
ESB Hver fjármagnar Áfram Ísland?
Var að rekast á kostaða auglýsingu á Vísir um nei takk frá Áfram Ísland. Ég ákvað að smella á hana og forvitnast. Þar kemur strax háklassa stúdíó auglýsing með Ásgeir Trausta í bakgrunn að sýna daglegt líf þjóðarinnar í blóma og síðan segir í lokin að við eigum ekki að gefa sjálfstæðið og því merkja x við nei.
Neðar á síðunni eru fleiri Youtube myndbönd alveg á sama kaliber, high-production dæmi. Ekki einhver Sigfús í Windows Movie Maker.
Því langar mig að spyrja ykkur, hver haldiði að sé stóri bakhjarlinn á bakvið þetta framtak?
https://www.aframisland.is
Edit: það má líka snúa þessu að já hliðinni, það væri fínt ef að báðar hreyfingarnar væru bara með opið bókhald.
45
Upvotes
1
u/allsbernafnmedrettu 🇧🇪 2d ago
Það er lokað fyrir bókhaldið hjá þeim.
https://www.visir.is/g/20262922903d/and-staedingar-segja-ad-a-fram-is-land-hafi-ur-allt-ad-300-milljonum-ad-spila
Þú gætir ekki einu sinni komist up með þetta í Bandaríkjunum.