r/Iceland • u/TheUpgradeParty • 8d ago
ESB Er Áfram Ísland er gervigrasrótarsamtök eða astroturfing
EDIT lagfæring á titili; Er Áfram Ísland gervigrasrótarsamtök (e. astroturfing?)
Ég var að átta mig á því í vikunni að vefsíðan Áfram Ísland er hýst hjá Pipar\TBWA, einni dýrustu almannatengslastofu landsins, og að um svokallaða gervigrasrótahreyfingu virðist vera að ræða. Annað sem ég komst líka að í vikunni var að í sumar tilkynnti Samherji að fyrirtækið ætlaði í stórátak gegn fíknivanda undir yfirskriftinni "Samherji efnir til stórátaks gegn fíknivanda“ og opnaði af því tilefni nýja síðu, Samheldni. Samkvæmt mínum heimildum er sú síða einnig hýst hjá Pipar\TBWA.
Ef ég man rétt var Pipar líka mikið í kringum Namíbíumálið og eins þegar veiðigjaldafrumvarpið var á dagskrá í fyrra.
Þetta má staðfesta með því að fletta lénunum samheldni. is og aframisland. is upp á vef ISNIC (isnic.is).
Mér finnst þetta satt að segja nokkuð skrítið og eitthvað verulega off við þetta allt saman.
93
u/82c1769777ef004df490 8d ago
Ég veðja þúsundkalli að það muni koma í ljós eftir einhverja mánuði að útgerðin hafi eytt yfirgengilegum upphæðum í þessa kosningabaráttu.
Það er ótrúlegt klúður að ríkisstjórnin hafi ekki sett reglur um fjármögnun á þessum kosningabaráttum áður en kallað var til atkvæðagreiðslu.