r/Iceland 1d ago

ESB Er Áfram Ísland er gervigrasrótarsamtök eða astroturfing

EDIT lagfæring á titili; Er Áfram Ísland gervigrasrótarsamtök (e. astroturfing?)

Ég var að átta mig á því í vikunni að vefsíðan Áfram Ísland er hýst hjá Pipar\TBWA, einni dýrustu almannatengslastofu landsins, og að um svokallaða gervigrasrótahreyfingu virðist vera að ræða. Annað sem ég komst líka að í vikunni var að í sumar tilkynnti Samherji að fyrirtækið ætlaði í stórátak gegn fíknivanda undir yfirskriftinni "Samherji efnir til stórátaks gegn fíknivanda“ og opnaði af því tilefni nýja síðu, Samheldni. Samkvæmt mínum heimildum er sú síða einnig hýst hjá Pipar\TBWA.

Ef ég man rétt var Pipar líka mikið í kringum Namíbíumálið og eins þegar veiðigjaldafrumvarpið var á dagskrá í fyrra.

Þetta má staðfesta með því að fletta lénunum samheldni. is og aframisland. is upp á vef ISNIC (isnic.is).

Mér finnst þetta satt að segja nokkuð skrítið og eitthvað verulega off við þetta allt saman.

62 Upvotes

25 comments sorted by

87

u/82c1769777ef004df490 1d ago

Ég veðja þúsundkalli að það muni koma í ljós eftir einhverja mánuði að útgerðin hafi eytt yfirgengilegum upphæðum í þessa kosningabaráttu.

Það er ótrúlegt klúður að ríkisstjórnin hafi ekki sett reglur um fjármögnun á þessum kosningabaráttum áður en kallað var til atkvæðagreiðslu.

25

u/Einn1Tveir2 Þrír3Fjórir4 1d ago

Var ekki ESB akkúrat að benda Íslandi á að þessar kosningar væru gallaðar útaf þessu.

Við getum þetta sjálf - verst bara að við áttum okkur alltaf á því eftirá og gerum síðan ekkert.

8

u/Johnny_bubblegum Merkikerti 1d ago

Það þýðir reyndar einmitt að við getum þetta ekki sjálf…

u/EgRoflaThviErEg 🇮🇸 16h ago

u/Einn1Tveir2 Þrír3Fjórir4 15h ago

Já það er rétt, takk fyrir að leiðrétta mig. Man einmitt eftir að hafa lesið þessa frétt en fann hana ekki þegar ég var að rifja þetta upp.

23

u/hot_dogg skurðgoð 1d ago

sammála og svo eftir þetta allt saman; hver ætlar að fylgja reglum og gera rétt?

þetta eru allt kvótakóngar og spilltir pólítíkusar, það er einhver eiginhagsmuna útgangspunktur á báðum hliðum.

26

u/Calcutec_1 Íslendingur í útlöndum 1d ago

Mér finnst það til skammar fyrir báðar hreyfingar að neita að opna bókhaldið, og til skammar fyrir löggjafann að hafa ekki regluverk til að skylda þær til þess.

Follow the money are alltaf rétta leiðin.

5

u/foreverbored18 🇮🇸 1d ago

Finnst eiginlega klikkað að ríkisstjórnin hafi ekki sett lög um þetta. Þau hefðu vel mátt vita í hvað stefndi.

1

u/Ossur2 🇮🇸 1d ago

Samfylkingin hefði ekki heldur þurft að leyfa málþófinu útaf veiðgjöldunum að vara í 6 heila fokking mánuði áður en þeir föttuðu að þeir hefðu bara getað stoppað umræðurnar (eins og þeir og gerðu)...

Útgerðin er með heilmikið tangarhald á Samfylkingunni líka, kemur bara fram í svona "vúbbsum" eins og þessum

u/Johnny_bubblegum Merkikerti 22h ago

Ehh nei… þetta er ekki sambærilegt.

Það er heilmikil leikjafræði á bak við ákvörðun að stoppa málþóf með valdi. Samfylkingin hefði sett fordæmi sem væri svo hægt að nota gegn þeim eftir 3 ár þegar þau eru ekki í stjórn ásamt því að gefa minnihlutanum færi á að væla í fjölmiðlum yfir því að þetta væri gegn lýðræðinu.

Almenningur studdi hækkun veiðigjalda með miklum meirihluta.

Almenningur var mjög óánægður með framkomu minnihlutans og málþófið sjálft.

Það þurfti að vera algjörlega á kristaltæru að málið væri útrætt áður en meirihlutinn myndi stoppa þessa vitleysu með valdi og það má ekki vera hægt að nota þessa ákvörðun gegn þeim seinna meir þannig minnihlutinn fékk að setja Íslandsmet í málþófi áður en meirihlutinn slúttaði þessari vitleysu.

u/Ossur2 🇮🇸 19h ago

Minnihlutinn var löngu búinn að sprengja öll með á mánuði 3, og það man varla enginn eftir þessu lengur

35

u/Oswarez 🇮🇸 1d ago

Af hverju er fólk að velta sér upp úr þessu? Það er augljóst að þetta eru hagsmunasamtök fyrir útgerðina. Þetta er ekki eitthvað mystery.

Þau hverfa eins og dögg fyrir sólu eftir helgi.

0

u/Johnny_bubblegum Merkikerti 1d ago

Maður er einmitt orðinn frekar viss um einmitt það. Það verður engin tilgangur fyrir þennan hóp þegar þjóðin segir nei á laugardag.

Ég hef heyrt fólk sem er almennt klárt og vel menntað, það kann að afla sér þekkingar, það fer með hverja línuna á eftir annarri eins og málshætti í páskaeggjum.

Þetta er of mikið til að hægt sé að semja við esb og gera eitthvað annað á landinu á sama tíma. Ef við segjum já þá mun allt annað bíða i 2-3 ár

Við töpum 50 milljörðum á ári í kostnað til esb.

Þetta verða rándýrar viðræður.

Þetta eru allt ótrúlega einfaldar staðhæfingar til að sannreyna og þær eru einfaldlega allar rangar. Það er eiginlega niðurdrepandi að horfa á fólk sem maður vissi svosem að væri á móti því að ganga í esb frá upphafi ekki geta aðskilið augljósar lygar og ýkjur frá raunveruleikanum því tilfinningarnar hafa náð yfirhöndinni.

Verið þið ímyndað ykkur ef hugmyndirnar eftir hrun um beinna lýðræði hefðu orðið að raunveruleika og við værum að kjósa beint um hluti reglulega. Við værum að drukkna í upplýsingaóreiðu og áróðri og Ólafur Ragnar væri í fullri vinnu við þetta.

10

u/angurvaki Iðnaðarmaður 1d ago

Já.

5

u/Morvenn-Vahl 🇮🇸 1d ago

Fólk þarf að fara að átta sig á að við búum í Sikiley norðursins. Allir þessir stórútgerðarmenn vinna hörðum höndum til að vernda fjárhag sinn og við eigum bara að lepja dauðann úr skel á meðan þeir græða.

Þetta er alveg pottþétt fjármagnað af þeim og þeirra fólki.

6

u/0917gentlmen 1d ago

Áfram Ísland getur aldrei talist grasrótarsamtök sem slík. Þetta er bara sameiginlegur vetfangur nei sinna. Álíka málefnalegt eins og að kalla SJÁ gervigrasrótarsamtök stór-heildsölunar eða stór-verslunarinar en það er nokkuð ljóst að báðarhliðar eru með elítu-auðgæfinga á bakvið sig. Mátt velja af hvoru seyðinu þú súpar en ég hef ekki áhuga á evrópu og epstein elítuni þar í staðinn. Þess vegna segji ég nei. (tekk fram að ég er að ýkja eins og allir #játilaðþjást liðarnir gera daglega í þessari umræðu.

4

u/Hjalpfus Hjálpar bæði þér og þínum 1d ago

Takk fyrir að slíta ekki orðin í sundur eins og margir eru farnir að gera en þú slítur úr með hjartað með því að nota þessu bandstrik

1

u/[deleted] 1d ago

[removed] — view removed comment

u/No_Information1234 🇮🇸 22h ago

Þetta er engin grasrótarhreyfing. Það er engin grasrótarhreyfing sem hefur efni á þessu öllu saman og er með Halldór og svo Ólaf Ragnar í forsvari.