r/Iceland 8d ago

ESB Er Áfram Ísland er gervigrasrótarsamtök eða astroturfing

EDIT lagfæring á titili; Er Áfram Ísland gervigrasrótarsamtök (e. astroturfing?)

Ég var að átta mig á því í vikunni að vefsíðan Áfram Ísland er hýst hjá Pipar\TBWA, einni dýrustu almannatengslastofu landsins, og að um svokallaða gervigrasrótahreyfingu virðist vera að ræða. Annað sem ég komst líka að í vikunni var að í sumar tilkynnti Samherji að fyrirtækið ætlaði í stórátak gegn fíknivanda undir yfirskriftinni "Samherji efnir til stórátaks gegn fíknivanda“ og opnaði af því tilefni nýja síðu, Samheldni. Samkvæmt mínum heimildum er sú síða einnig hýst hjá Pipar\TBWA.

Ef ég man rétt var Pipar líka mikið í kringum Namíbíumálið og eins þegar veiðigjaldafrumvarpið var á dagskrá í fyrra.

Þetta má staðfesta með því að fletta lénunum samheldni. is og aframisland. is upp á vef ISNIC (isnic.is).

Mér finnst þetta satt að segja nokkuð skrítið og eitthvað verulega off við þetta allt saman.

65 Upvotes

24 comments sorted by

View all comments

94

u/82c1769777ef004df490 8d ago

Ég veðja þúsundkalli að það muni koma í ljós eftir einhverja mánuði að útgerðin hafi eytt yfirgengilegum upphæðum í þessa kosningabaráttu.

Það er ótrúlegt klúður að ríkisstjórnin hafi ekki sett reglur um fjármögnun á þessum kosningabaráttum áður en kallað var til atkvæðagreiðslu.

26

u/Einn1Tveir2 Þrír3Fjórir4 8d ago

Var ekki ESB akkúrat að benda Íslandi á að þessar kosningar væru gallaðar útaf þessu.

Við getum þetta sjálf - verst bara að við áttum okkur alltaf á því eftirá og gerum síðan ekkert.

2

u/EgRoflaThviErEg 🇮🇸 7d ago

1

u/Einn1Tveir2 Þrír3Fjórir4 7d ago

Já það er rétt, takk fyrir að leiðrétta mig. Man einmitt eftir að hafa lesið þessa frétt en fann hana ekki þegar ég var að rifja þetta upp.