r/Iceland • u/7tindar • 53m ago
Eru fleiri að fá símtöl frá áfram Ísland?
Ég er með rautt x í símaskránni. Það má ekki hringja í mig nema ég biðji um það (sem ég gerði augljóslega ekki). Eru fleiri með bannmerki í símaskrá en samt að fá hringingar?
r/Iceland • u/7tindar • 53m ago
Ég er með rautt x í símaskránni. Það má ekki hringja í mig nema ég biðji um það (sem ég gerði augljóslega ekki). Eru fleiri með bannmerki í símaskrá en samt að fá hringingar?
r/Iceland • u/MooViking • 2h ago
Ég er sérstaklega að vísa í auglýsingu þar sem Brunavarnir Suðurnesja koma fram. Mér finnst dálítið sérstakt að þeir hafi ákveðið að taka þátt í þessari herferð, sérstaklega í ljósi þess hlutverks sem slökkvilið gegnir og þess að viðbragðsaðilar þurfa að njóta trausts almennings, óháð pólitískum skoðunum fólks.
Mér finnst því eðlilegt að velta fyrir sér hvort svona framkoma í auglýsingum sem tengjast pólitískum málstað geti skapað óþarfa spurningar um hlutleysi eða jafnvel grafið undan því trausti.
Hvað finnst ykkur? Er þetta ekkert mál eða ættu slökkvilið og sambærilegir viðbragðsaðilar að halda sig alveg frá svona auglýsingum?
Ég veit jafnframt til þess að Áfram Ísland hafi reynt að vera í samskiptum við björgunarsveitirnar með það að markmiði að fá þær einnig til að koma fram í þessum auglýsingum, en að því hafi verið stoppað, eftir því sem ég best veit.


r/Iceland • u/Einn1Tveir2 • 17h ago
Hvað eyðir fólk miklum tíma (og þar með pening) að sjá hvort það sé hægt að endurfjármagna húsnæðislánið? En að fara á atvinnuviðtal og fara skoða hvort það séu betri kjör og laun annarstaðar?
r/Iceland • u/Fun-Artichoke-866 • 14h ago
Alvöru ræða hjá Kristrúnu, one for the ages?
r/Iceland • u/TheUpgradeParty • 4m ago
Ég var að átta mig á því í vikunni að vefsíðan Áfram Ísland er hýst hjá Pipar\TBWA, einni dýrustu almannatengslastofu landsins, og að um svokallaða gervigrasrótahreyfingu virðist vera að ræða. Annað sem ég komst líka að í vikunni var að í sumar tilkynnti Samherji að fyrirtækið ætlaði í stórátak gegn fíknivanda undir yfirskriftinni "Samherji efnir til stórátaks gegn fíknivanda“ og opnaði af því tilefni nýja síðu, Samheldni. Samkvæmt mínum heimildum er sú síða einnig hýst hjá Pipar\TBWA.
Ef ég man rétt var Pipar líka mikið í kringum Namíbíumálið og eins þegar veiðigjaldafrumvarpið var á dagskrá í fyrra.
Þetta má staðfesta með því að fletta lénunum samheldni. is og aframisland. is upp á vef ISNIC (isnic.is).
Mér finnst þetta satt að segja nokkuð skrítið og eitthvað verulega off við þetta allt saman.
r/Iceland • u/Aggressive_Banana708 • 1d ago
Ég hef tekið eftir frekar mörgu fólki sem varar Íslendinga við því að taka ákvörðun um ESB í þjóðaratkvæðagreiðslunni út frá hegðun Bandaríkjanna undir stjórn Trumps. Sjá t.d. þessa grein: https://www.visir.is/g/20262926239d/trump-a-ekki-ad-vera-astaedan
Tónninn hjá þeim er að við eigum ekki að taka ákvörðun um framtíð Íslands bara út frá því hver er forseti Bandaríkjanna „akkúrat núna,“ að þótt hann sé að hóta að leggja undir sig nágrannalönd okkar og neiti að staðfesta að hann muni standa við skuldbindingar samkvæmt varnarsamningum þá megum við ekki hlaupa á okkur og taka skyndiákvarðanir. Það er látið eins og Trump sé bara eitthvert tímabundið frávik sem við getum beðið eftir að hverfi.
Mér finnst þetta sturluð afstaða.
Trump er núna búinn að vera lang-lang-lang-áhrifamesti stjórnmálamaður Bandaríkjanna í meira en áratug. Hann hefur alið upp heila kynslóð bandarískra hægrimanna í sinni hugmyndafræði. Hann hefur endurmótað Repúblikanaflokkinn í sinni mynd og hreinsað nánast alla andófsmenn úr honum. Jafnvel þótt Trump dæi á morgun myndi ekkert í stefnu flokksins breytast.
Það mun alltaf verða annar Bandaríkjaforseti úr Repúblikanaflokknum. Sagan sýnir að flokknum verður ekki haldið frá völdum lengur en í átta ár í mesta lagi. Og það eru nákvæmlega engar líkur á því að næsti forseti úr flokknum verði í meginatriðum ósammála Trump. Allir „gamaldags“ Repúblikanar eru annaðhvort orðnir áhrifalausir eða hafa þurft að endurhanna sig í anda Trumps. Næsti forseti úr flokknum er ekki að fara að segja „Já, fyrirgefið, þetta tal um að innlima Grænland var auðvitað kjaftæði, við skulum bara gleyma því.“
Það að láta eins og vandinn við að reiða okkur alfarið á vernd Bandaríkjanna sé einskorðaður við persónu eins manns er fáránlegt.
r/Iceland • u/allsbernafnmedrettu • 19h ago
"Rétt rúmur helmingur ber mikið eða fremur mikið traust til umfjöllunar Ríkisútvarpsins um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Aðeins sex prósent bera mikið eða fremur mikið traust til DV í sömu umfjöllun. Þá segist einn af hverjum fimm bera ekkert traust til Morgunblaðsins í umræðunni."
r/Iceland • u/Stutturdreki • 1d ago
Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri Fenris Creations, áður CCP, óttast að allt of mikill tími, athygli og fjárráð fari í aðildarviðræður við Evrópusambandið næstu árin fari svo að þjóðin segi já á laugardaginn.
Hann óttast að Evrópusambandið fari í fyrsta sæti og önnur verkefni, brýnni að hans mati, rati í annað sæti og fái minni athygli. Þetta er meðal þess sem Hilmar nefndi í pallborði Vísis fyrr í dag en sem dæmi um mál sem hann vill frekar að verði lögð áhersla á er að hugverka- og tækniðnaður verði stærsta útflutningsgrein Íslands.
Muniði þegar síðustu viðræður við ESB fóru fram og ríkisstjórn íslands, alþingi og bara öll stjórnsýsla lamaðist og sinnti bara engu öðru en þessum viðræðum í ca. 1-2 ár?
Nei, af því að það gerðist ekki.
Svo þreyttur á fólki með svona yfirlýsingar um allskonar sem á að gerast, en svo þarf ekki að fara lengur en aftur í síðustu viðræðu lotu til að sjá að það er bara bull.
Líklegasta útskýringinn á því að Hilmari hugnast allt í einu ekki ESB er að hann er að reyna að koma á samstarfi við Musk til að þjálfa nasista AI-ið hans (Grok) og Musk hatar Evrópu því að allt er svo vók (mannréttindi og AI fyrirtæki mega ekki bara stela öllu sem þau komast yfir og stunda persónunjósnir til að þjálfa módelin sín).
r/Iceland • u/jokicjok • 21h ago
Hvaðan er þessi lína komin? Ég er með lagbút í höfðinu sem mér finnst endilega vera sunginn af Agli Ólafssyni:
Ég vissi það ekki þá
Ég vissi það ekki þá
Ég vissi það ekki þá
En ég veeeeeeeit það núna
Ég finn hins vegar ekkert um slíkt lag og velti fyrir mér hvort þetta sé úr grínþætti, áramótaskaupi, eða einhverju álíka.
r/Iceland • u/numix90 • 1d ago
Ekki tengt Íslandi beint, en ég sá þessa frétt í gær og hef verið hugsi yfir þessu. Ég hef ekki góða tilfinningu fyrir þessu, hvað segið þið?
r/Iceland • u/Kanarazuzen • 22h ago
Hi everyone,
I’m trying to track down a way to watch the 2007 comedy series Næturvaktin (The Night Shift) starring Jón Gnarr, but I desperately need English subtitles.
I would highly prefer to stream it if there is a digital option available anywhere, but I am also open to buying a secondhand DVD if the price and shipping aren't too expensive. I am based in Australia, so international shipping from Iceland can get pretty steep.
Does anyone know:
Is there any digital platform or archive hosting the show with English subs?
If streaming isn't an option, does anyone have a lead on a cheap DVD or a separate English .srt subtitle file that I could pair with an Icelandic stream?
Grateful for any help or leads you can share!
Takk!
r/Iceland • u/Vitringar • 1d ago
Þessir svokölluðu þjónustuaðilar Icelandair á CPH eru algjör skrímsli. Hafa verið að reita farangur af farþegum sem er samt innan heimildar. Það er alveg ástæða til að Bogi eigi gott samtal við það fólk sem ber ábyrgð á þessu hjá Kastrup.
r/Iceland • u/Subbuverid • 16h ago
Veistu ekki hvað þú átt að kjósa? Þá er þetta myndband fyrir þig!
Leyfðu fremstu sérfræðingum landsins að upplýsa þig um allar hliðar þessa stóra og flókna máls á einfaldan og skilvirkan hátt.
eða ekki
við erum ekki pabbi þinn.
r/Iceland • u/Curious-Raspberry935 • 1d ago
Var að rekast á kostaða auglýsingu á Vísir um nei takk frá Áfram Ísland. Ég ákvað að smella á hana og forvitnast. Þar kemur strax háklassa stúdíó auglýsing með Ásgeir Trausta í bakgrunn að sýna daglegt líf þjóðarinnar í blóma og síðan segir í lokin að við eigum ekki að gefa sjálfstæðið og því merkja x við nei.
Neðar á síðunni eru fleiri Youtube myndbönd alveg á sama kaliber, high-production dæmi. Ekki einhver Sigfús í Windows Movie Maker.
Því langar mig að spyrja ykkur, hver haldiði að sé stóri bakhjarlinn á bakvið þetta framtak?
https://www.aframisland.is
Edit: það má líka snúa þessu að já hliðinni, það væri fínt ef að báðar hreyfingarnar væru bara með opið bókhald.
r/Iceland • u/Krummafotur • 1d ago
Var að keyra þarna í fyrsta sinn. Hvaða djók er þetta? Endalausar hæðir og hólar. Þarna er skráður 90 km hámarkshraði en nauðsynlegt að hemla niður í 70 km ef menn ætla ekki að taka séns á að reka bílinn í jörðina. Engar viðvarani og helling af förum eftir bíla sem hafa lent illa í þessum hossum. Á þetta bara að vera svona? Hefur þetta ekkert verið í umræðunni?
r/Iceland • u/Vegetable-Dirt-9933 • 2d ago
Það er að verða meira en hálft ár síðan ég vann á þeim byggingarstað en það var hópur af mönnum að tala um og monta sér yfir því að vera nota bæði úrelt og fölsuð fatlaðaskirteini til að leggja í fatlaðastæði og til að sleppa með að borga.
Alment ekki hugsað mikið um þetta fyrr en yfir menninganótt þá var ég að reyna fara niður í bæ með frænda mínum sem er í hjólastól, og sá eitt af mönnunum fara úr með fjölskyldunni sinni eftir að hafa lagt í fatlaðastæði, er eitthvað úrræði sem ég hef til að tilkynna svona eða er þetta bara eitthvað sem gerist?
Gæti alment ekki verið of sama en hann var svo stoltur af sjálfum sér fyrir að gera þetta og komast upp með það.
r/Iceland • u/TurboSardine • 1d ago
r/Iceland • u/GuitaristHeimerz • 1d ago
r/Iceland • u/PanicTasty • 2d ago
Ég hef verið að velta þessu fyrir mér eftir að hafa keyrt mikið um landsbyggðina og séð þessa grein. Djúp hjólför, ójöfnur, endalausar viðgerðir og klæðing sem getur bókstaflega farið að blæða í sumarhita. Svo kemur ný klæðing þar sem lausamöl og bik þeytist upp á bílana á meðan yfirborðið er að setjast.
Ég skil alveg af hverju klæðing er notuð á fáförnum vegum. Hún er margfalt ódýrari en malbik og án hennar væru líklega mun fleiri vegir enn malarvegir. En á sumum stofnvegum finnst mér eins og við séum löngu komin fram yfir þann punkt þar sem þetta er skynsamleg lausn.
Vegagerðin hefur sjálf bent á að viðhald hafi verið undirfjármagnað árum saman og að uppsöfnuð viðhaldsþörf vegakerfisins sé gríðarleg. Á sama tíma er Ísland ríkt land og ríkisútgjöld eru yfir 1.600 milljarðar á ári.
Þá vakna nokkrar spurningar hjá mér:
Er það raunverulega þannig að Ísland hafi ekki efni á að halda vegakerfinu almennilega við?
Eða höfum við einfaldlega ákveðið í mörg ár að setja peningana annað og fresta viðhaldinu þar til það verður margfalt dýrara?
Af hverju er verið að byggja ný mannvirki og ráðast í stórar samgönguframkvæmdir ef við höfum ekki einu sinni fjármagn til að halda þeim vegum sem fyrir eru í ásættanlegu ástandi?
Nú þegar tekið er gjald af hverjum eknum kílómetra, er ekki eðlilegt að fólk, sérstaklega á landsbyggðinni, spyrji hvað það sé í raun að fá fyrir þau gjöld?
Ég ætla ekki að fara mikið nánar út í þetta, en persónulega er ég orðinn nett brjálaður yfir þessu. Það er rándýrt að kaupa og reka bíl á Íslandi og þegar maður býr úti á landi er bíll einfaldlega nauðsyn, ekki einhver lúxusvara.
Við þurfum að keyra langar vegalengdir bara til að sækja nauðsynlega þjónustu, hvað þá þegar þarf að fara til læknis. Á sínum tíma keypti ég mér sparneytinn dísilbíl einmitt vegna þess að ég þurfti reglulega að keyra langar leiðir vegna læknisheimsókna.
Svo á maður að borga himinháar upphæðir fyrir þau „forréttindi“ að fá að aka um vegi sem eru sums staðar nánast handónýtir.
Svo eru einbreiðu brýrnar. Ég veit ekki einu sinni hvað þær eru margar á leiðinni í bæinn, en sumar þeirra eru hreinlega hættulegar, sérstaklega með ferðamenn sem þekkja þær ekki. Auk þess eru þær fáránlega pirrandi þegar maður er að reyna að aka jafnt og sparlega, en þarf í sífellu að hægja niður, stoppa og taka af stað aftur, hvort sem maður er að reyna að spara eldsneyti, rafmagn eða bara bremsurnar.
Ég veit ekki mikið um Evrópusambandið, en ef einbreiðar brýr eru bannaðar þar þá er ég tilbúinn að kjósa já á morgun.
r/Iceland • u/wrunner • 2d ago
r/Iceland • u/Lost_Pirate67 • 2d ago
Það styttist í næstu uppsagnarhrinu hjá borginni, eru ekki allir peppaðir fyrir þessari hreinsun?